17.12.2008 00:35:29 / johannrunar
það er víst frekar seint fyrir lokabloggið! var aðeins of upptekin 10 des á nandós og að hafa enga tíma til þess að pakka til þess að blogga!
djöfull er þetta búið að vera fljótt að líða!! ég er búin að búa í london í tvö og hálft ár og jóhann bjó í ca 16 mánuði! þetta var svo geggjaður tími og ég held ég hafi aldrei lært jafn mikið á jafn stuttum tíma og haft jafn gaman!
við kynntumst frábæru fólki sem urðu góðir vinir okkar og munu alltaf vera! en svona svo þetta verði ekki of væmið þá er ég með bara smá stykkorð
ég mun sakna....
að geta talað um allt og alla án þess að nokkur skilji
íbúðinnar okkar á finsbury park
að fara á pöbb
tesco og boots
öllu fólkinu sem ég hef kynnst
strætó
kvöldstundanna hjá mér og db við eldhúsborðið að spjalla endalaust
stelpu kökuboðana
h&m og topshop
ég man...
þegar ég fór á trúnó í fyrsta skiptið með sigrúnu
að óli þefaði alltaf af nestinu sínu
eftir öllum tónleikum sem ég hef farið á
eftir öllum ferðalögunum sem ég hef farið í
alls ekki eftir öllum adda partíium
þegar ég vann helga í slag loksins
eftir öllum heimsóknunum sem við fengum
þegar ég loksins vann jóhann í battleship
hvað það var gaman í sörf ferðinni
hvað maður var fátækur stundum
þegar gummi sagðist vera hitta stelpu og ég fór að njósna um eínu! hahaha
ég er glöð að...
geta verið kærasta
hafa mömmu
hafa allar góðu vinkonur mínar
vera ekki að borga leigu
geta farið í sund
fá alltaf íslenskan mat
borga ekki leigu
jólin sé að fara koma
en svo er ég auðvitað að vinna hjá jón og óskari á laugarveginum núna um jólin eins og alltaf þannig að endilega komið og heimsækið mig einsog vaninn er! sérstaklega á þorláksmessu þá er mesta partíið! veii!! það eru ekki jól án jón og óskars!
ohh djís þá er kominn endi á þennann kafla og tími til að byrja vera á íslandi og vera bara á facebook! ég verð ekki að blogga lengur þannig að bara takk fyrir að fylgjast með okkur nenna lesa þetta!
Kveðja,
Brynja og Jóhann
»
07.12.2008 22:09:53 / johannrunar
hér sitjum við db og þykjumst læra! við fórum upp í skóla til hennar í dag og ætluðum að læra þar en það ekki vel fyrir hvoruga okkur þannig að við fórum heim að læra!
það er svo mikið partí að búa hjá magneu! ef mér og db gekk ill að læra þegar við vorum bara 2 þá veit ég ekki hvað ég á að segja um okkur 3 - ég læri allavega ekki!
það var stelpu partí hjá okkur á föstudaginn og trúnó! í gær fór ég í blak jólapartí og svo var seinasta adda partí! ég fór og þurfti nú ekki að tala hann mikið til um það að fá mitt seinasta adda partí í londno! mjög gaman í blak partíinu samt - mega vírd að kveðja alla því þetta er fólk sem ég veit ekkert hvor ég hitti einhvertímann aftur! þetta er allt svo skemmtilegt lið sem ég er búin að þekkja næstu því frá day one sem ég flutti hingað út og þau eru öll mikið eldri en ég þannig að þau svona passa mig soldið alltaf því ég er litla barnið! svo náttúrulega dró ég umþb 25 mans úr hópnum til íslands árið 2007 í blak og djammferðalag sem var geggjað! og núna bara búið! úff sjit! maður hefur allavega facebook en djöfull var þetta erfitt! svona 3 stelpur sérstaklega sem ég var svoooo leið yfir að kveðja! náði samt að halda aftur tárunum sem betur fer! fjúff! en já ég kvaddi þau allavega vel og hélt á leið í adda partíið! þar voru ógeðis myndir og vídeó tekin sem matt fáviti er búin að setja á facebook! haha andskotinn! addi fann íslenskt brennivín - ég bölva honum mikið í dag!
3 dagar í þetta! djíííííísssussss!
ég og db vorum að lesa yfir ritgerðir hvor annara áðan og db fannst mega fyndið að breyta nafniu mínu í Belja Guðjónsdóttir sem er of fyndin pæling! sem betur fer gerðin hún það ekki því hún hefði gleymt því og skyldi ég ekki taka eftir því þá skila ég inn flottu ritgerðinni minn "Social Facilitation by Belja Guðjónsdóttir" hahahaha væri bara fyndið reyndar fyrir okkur þar sem við skiljum þetta en kannski ekki jafn mikið fyrir bretana! hlóum mikið yfir þessu!
erum ekki að nenn að læra í miklum galsa!
vorum að skoða gullkorn af barnalandi frá systir droplaugar og rákumst á þetta mjög fyndna gullkorn sem synir hennar sögðu:
Nóv 2004 Benedikt kom inn í eldhús og sagði að Arnór vildi fá mörgæs.
"Mörgæs?" sagði mamma, "já mörgæs" sagði Benedikt . Mamma sagði að hún
ætti enga mörgæs og kallaði á Arnór og hann kom hlaupandi úr stofunni
og sagði að hann hefði beðið Benedikt um að fara og ná í MÖRG KEX en
ekki MÖRGÆS. Bara smá misskilningur!!!
loka blogg svo á miðvikudaginn!
bleis
»
05.12.2008 20:09:39 / johannrunar
jahá! ég var að vinna í mega private celebrity partíi í gær! það var mega mega!
seinsta vaktin mín í bretlandi og hún var klárlega sú besta sem ég hef verið á! var næstum búin að beila á þessari vakt en úfff sko.....þetta var ss charity fundraiser með öllum a- list celebrities! í partíinu voru: george clooney, matt damon, scarlett johannsen, roberto cavali, cindy crawfor, michael caine, claudia schiffer, eva herzigova, guy ritchie, bono og sophie dahl og fleiri!!!! (og reyndar kid rock - sem mér finnst bara ekki nógu merkilegur til að nefna, of halló gæji) en já eru þið að djókkkkkkkaaaaa!!! ég talaði (oft) við george clooney, ekkert um mikið bara bjóða honum mat og ath hvort allt væri ekki í lagi og svona og hann er mest næs gæji ever - og offffffffff myndarlegur! cindy crawfor er offffff falleg! úff sko! bono er hallærislegur! claudie schiffer en ennþá fallegri! matt damon er fyndin! scarlett johannsen er mega beib og ég vildi óska að michael caine væri afi minn - hann er of krúttlegur!!
þetta var svo gaman! ég var í celeb partíi! vííííí!!! reyndar að vinna en það var samt mega gaman! og sá fokking mikið af MEGA flottum celebrities!
það var svo gaman að segja stelpunum þetta í morgun! þær voru svooooo abbó!! nannananananííí!!
úff ég get farið heim sátt núna!
rólegt sötur bara hjá okkur stelpunum í kvöld! liðið fer að mæta og ég á eftir að gera soldið mikið áður en þær koma! þannig að læta þetta bara duga svona! 
Kv. Mrs. Brynja Clooney
»
02.12.2008 14:00:36 / johannrunar
í dag flytjum við droplaug út úr íbúðinni!!! hún er galtóm og þetta er skrítið! við erum að flytja til mags þangað til á miðvikudaginn eftir viku, 8 daga, og þá fljúgum við til íslands!!!
þá flytjum við til íslands!
vá mér finnst þetta of skrítið!!
það er rosalega mikið búið að vera gerast! ostar og rauðvín hjá magneu á föst eins og ég hafði nefnt held ég! laugardagurinn fór í dugnað og lærdóm og á sunnudaginn var mega sega kósí jólakaffi hjá sigrúnu og óla! kakó, piparkökur, jólaglögg, smákökur, jólatré og jólalög! djís! mig langar aftur! jólin eru best!
gærdagurinn fór í skóla og þrífa pleisið hátt og lágt! verðlaunuðum okkur svo með nandós og tókum leigubíl með allt dótið til mags! svafum seinsustu nóttinar hérna í nótt og erum að fara ganga frá henni alveg og loka og læsa bráðlega! úff!
ég er farin að vinna að lokablogginu því þetta blogg hættir þegar ég flyt til íslands! jóhann og brynja bogg ekki lengur frá london þá! jóhann löngur hættur reyndar hehe
en já ég sendi facebook invite á morgun um þetta... en á þriðjudaginn eftir viku, 9 desember, ætlum við droplaug að fara á hope & anchor á upper street (victoria line, highbury and islingon station, ef einhver skyldi ekki vita) og fá okkur seinustu london bjórana á pöbb! vonum að öll litlu london krílin okkar geta komið og kvatt okkur! það væri rosalega gaman! þó það væri ekki nema í one pint! cheers! ohh því mun vera sárt saknað að fara á pöbb!
en já áður en ég fer að væla hérna liggur við þá látum við þetta gott í bili!
hlakka til að vera roomies magnea! 
-Brynja
»
28.11.2008 14:27:44 / johannrunar
gærdagurinn var rosalegur! hann átti að vera mega lærdómsdagur og pakka dagur og svonleiðis EN......ég kom heim kl.230 fimtudagsnóttina eftir 16,5 klt vinnudag og þurfti að vakna kl 830 í gær til þess að fara í skólann! auðvitað svaf ég óvart yfir mig 
- vaknaði kl.11 fór í sturtu
- borðaði hádegismat
- skoðaði slúðurblað
- fór út í búllu og keypti dagblað fyrir ritgerð sem ég er að gera og ætlaði að vera skrifa - þetta tók bókstaflega 7 mínútur
- svo kom droplaug heim (hún ætlaði að borða snöggvast og fara aftur upp í skóla að læra til kl.22 um kvöldið)
- við mönsuðum inn í eldhúsi og spjölluðum
- kl. 16 fattaði ég að ég var búin að sitja við eldhúsborðið síðan kl. 12 í hádeginu og við ákváðum að við verðum að fara gera eithvað úr deginum núna!
- í staðinn ákváðum við að borða draum sem db kom með frá íslandi
- magnea og árni komu og tæmdu íbúðin af aukahlutum sem þau ætla fá að eiga
- ég og db settumst aftur inn í eldhús eftir það
- elduðum pasta rétt í kvöldmat
- kl. ca 20 náðum við loksins í hamar og nagla og löguðum sófann! afrek dagsins
- settumst aftur inn í eldhús
- svo kom gaur að ná í sófann sem db og friðrik voru að selja
- aftur inn í eldhús til kl 22
- fórum og tjekkuðum email, facebook ect
- db kom inn í herbergi til mín að tala
- ég fór inn í herbegi til hennar að tala
- fórum aftur inn í herbergi til mín að tala
- kl. 045 ákvaðum loksins að við verðum bara að fara sofa
helduru að við höfum talað nóg yfir daginn?
ég sat inn í eldhúsi í ca 12 klt í gær að gera bókstaflega ekki neitt!
fínn dagur samt! og furðulega fljótur að líða!
hræðilegt að búa stundum með svona góðri vinkonu sinni - við komum engu í verk stundum! bara svo næs að chilla inn í eldhúsi og spjalla! ætluðum svo innilega að vera duglegar báðar vorum með þvílíkt planaðan dag og svo bara "nei hæ! aðeins inn í eldhús? já! úbbs kl. er 23"
það er svo fyndið líka alltaf þegar mamma hringir núna þá spyr hún svo mikið út í droplaugu og er alveg "jájá hvað segir hún droplaug mín gott? eru þið litlu músirnar mínar hressar?! hvað eru þið búnar að vera gera?!" mamma er farin að hugsa um db sem sína helda ég! mjög krúttlegt! "jájá hún droplaug mín er svo dugleg, já" hahaha
en dugelgar í dag já! skóli, læra og stelpukaffi hjá magneu! læri dagur vonandi á morgun og piparköku jólabakstur hjá sigrúnu og óla á sunnudaginn! ég sé fyrir mér góða helgi framundan! ég fekk líka subway í surprise hádegismat í boði árna hjörvars og magneu! ég er heima og árni kom að ná í smá meira dót og gaf mér subway sem "senkjú" voða krúttlegt! takk fyrir mig! hann vera mjög góður! vel valið brauð, veggie og southwester sósa! namm!!! 
en jæja.....í dagur verður dagurinn sem eitthvað gerðist þannig að ég segi bara hlakka til að sjá ykkur london ladies eftir smá! og íslendingana eftir 12 daga, samt eiginlega bara 10 daga!!! hehe 
later
»
27.11.2008 11:42:45 / johannrunar
til hamingju með daginn jóhann afmælisbarn!!!! vei vei vei!!!! ammli!!! ammli!!!!
krækiberaknús í botn!
vertu jafn mikil afmælisbarn og ég!!!! hehe
»
25.11.2008 18:38:04 / johannrunar
já ég er komin á facebook! ég kann samt voða lítið á þetta - er farin að læra svara fólki og alles! en núna er maður víst orðinn töff!
ég átti æðislegan afmælisdag! bara við stelpurnar í mega chilli - borðuðum köku, fengum okkur sushi og fórum í bío!! namm!!
jóhann kom daginn eftir og búið að vera mega chill síðan! hann fór áðan frá london í seinasta skiptið í langan tíma! soldið skrítið að vera ekki að koma aftur til gömlu góðu london! ekkert meiri nandós! hehe
fórum öll á sigur rós á fimtudaginn! komu nokkrir krakkar til okkar fyrir tónleikana og voða kósí! djöfull voru tónleikarnir rosalegir! mega flottir og rosa gott show!!! mjög sátt með strákana! 
db var á ísland yfir alla helgina og var að koma í dag líka þannig að allir búnir að vera koma og fara! orðið ansi tómlegt hérna þar sem allt dót db og friðriks er farið á pallettu heim og jóhann búin að tæma mig eiginlega! úff sko!
svo eru bara tvær ótrúlega stuttar vikur eftir í london! kreisí! og verður ekki minna að gera þessar tvær vikur sem eftir eru heldur en hefur verið undanfarið! langur vinnudagur á morgun (16,5 klt
) , mikill lærdómur á fimtudaginn og pakka og stelpukaffi hjá magneu á föst! þori ekki að plana lengra fram í tímann!
jóhann er afmælisbarn eftir 2 daga! veii!!
höddi á morgun! amma eftir 3 daga! freydís eftir 5 daga! nóvember er klárlega besti mánuðurinn! 
en já....gaman af þessu! nóg í bili!
-brynster
»
17.11.2008 20:22:56 / johannrunar
egill og bryndís (og kannski addi og matt - veit ekki alveg) gáfu mér póker sett í afmælisgjöf sem er GEGGGGGJAÐ!!!!! mega fyndið þar sem þau þekkja mig nú ekki mikið og ég mér finnst póker of skemmtilegt! og núna þurfum við bryndís að kenna hinum stelpunum póker þá getum við verið alveg eins og desperate housewives
pant vera lynnett! haha
en að núna er komið að öðru hættulegu umræðuefni...fæ örugglega mjög mismunandi krítík fyrir það sem ég er að fara segja.....en er einhver komin með ógeð af sex and the city - kannski er myndin smá breath of fresh air en....ég nenni ekki að horfa á þær lengur! ég elskaði elskaði elskaði þessa þætti! og ég segi kannski ekki alveg að ég sé komin með ógeð af þeim en ég nenni allavega ekki að horfa á þessa þætti lengur! er búin að fá mjög langa og góða pásu en carrie bradshaw (sem var auðvitað uppáhaldið mitt eins og hjá nánast öllum stelpum) fer bara of mikið í taugarnar á mér núna! miranda er alveg lang mesta uppáhaldið mitt núna en ég bara gafst upp áðan! ég á allar seríurnar og þetta er alveg fín afþreying og fínt að horfa á þetta en ég get ekki horft á þetta eins og ég gerði einusinni!
er ég ein um þetta eða?
fyndin saga allavega....þá var systir droplaugar hérna um daginn og þær voru úti að rölta og allt í einu eru 4 stelpur að labba í áttina að þeim og tryllast alveg og byrja bara að skjálfa og öskra bara "its her, its her! oh my god its MARY KATE!!!!!!!!!" HAHAHAHAHAHAHAHAAHAHAH þær héldu ss að db væri önnur hvor þeirra og voru bara að FRÍKA ÚT á götum london!!! hversu fyndið er það!!
(ég á afmæli á morgun!)
later
»
16.11.2008 00:07:24 / johannrunar
ég held ég eigi sætustu mömmu í heimi sem þekkir mig of vel - ég fæ ss ennþá alltaf jóladagatal því mér finnst það gaman og ég elska jólin og ég er 5 ára en fekk ekki íslenskt í fyrra heldur plöggaði jóhann bresku en......... ég var að tala við mömmu og hún er núna búin að kaupa jóladagatal handa mér (og jóhanni) sem jóhann getur komið með út og þá verð ég með jóladagtal 1 des!! veiiii!!!! hahaha hversu mikið barn getur maður verið! haha
en já ekkert smá kósí í gær og takk æðislega fyrir mig stelpur mínar! það komu nokkrir í viðbót svo og drukkum smá vín! mega kósí! en þurfti að vera mætt í vinnuna kl 11 í morgun sem var samt ágætt því þá lá maður ekki heima í leti! ég var ekki komin heim fyrr en kl hálf 20 og ég bara nenni ekki að gera neitt í kvöld! mega kósí að vera heim löt!! búin að vera kjafta í símann bara sem gerist aldrei sem var frekar skemmtileg til breyting!
smá jólashopping á morgun og kósí!
svo á ég afffmææælliiiiiii eftir bara 3 daga!!!! veiii!!!!
þegar jóhann bjó hérna ennþá þá var hann að safna í bauk og endaði með 78 pund!! ekkert smá nice! og núna er ég búin að vera með bauk og ég verð að ná meira en 78 pundum! förum í þetta þegar jóhann verður hérna að tæma hann! ég verð að vinna!!! haha það verður spennandi að sjá!
er málið að fá sér facebook? maður er að heyra þetta!
»
13.11.2008 03:53:16 / johannrunar
jæja hvað er í gangi hérna....ég er nú vanalega ekki manneskjan sem getur ekki sofnað en allt getur nú gerst!
mér var boðið í gourmei kreppu pestó pasta í gær til magneu þar sem að græðgin tók yfir og við borðuð svona kíló af pasta! sigríður joinaði og kom með ógeðslegt kfc wannabe london mat! haha
vinna í kvöld og klára læra!
ég er að horfa a love actually og bara enda með að sofna aldrei! úff! bögg!
mega sega stelpu afmæliskaffi hérna heima á föstudaginn og svo fá blessuðu typpin a koma í afganga og smá vín! ég á nebbla afmæli sko! nema magnea bits beilaði og ákvað að skreppa til parísar fram á laugardag! en það er allt í lagi því það er öll birthday week eftir!! ég er búin að fá fyrsta afmæliskortið og eina afmælisgjöf! veiii!
jóhann að koma í næstu viku! veiii!
sigur rós tónleikar í næstu viku!
styttist óðum í það að maður flytji á gamla klakan! er víst búin að kaupa one way ticket to iceland 10 desember! kreisí!
kreisí saga....gunnar bróðir minn ákvað spontantly að sækja um vinnu í puerto rico sem aðstoðar hótel stjóri fyrir 2 vikum! puerto rico leyst svona helvíti vel á hann og helduru að hann hafi ekki bara fengið vinnuna og er svona heldur betur að flýja kreppuna og flytja til puerto rico að gerast aðstoðar hótel stjóri!!! er hann eitthvað klikk?!?!? ég er ekkert smá sátt með hann! örugglega mega gaman!!!!! um að gera prófa svona þegar maður er ungur og getur og ef þetta er ekki töff þá bara kemur maður aftur heim! puerto rico! hversu mikið hlakka ég til að fara heimsækja hann!!!!!!!
ég hlakka svo til að fara byrja versla jólagjafir!!!!!!!!!! ég hlakka svo til jólanna! er búin að ákveða rosa mikið af gjöfum og svo gaman að fara kaupa!!! veiii!!! langar að fara heyra jólalög! kannski eftir afmælissönginn bara! 
jæja top gun komin í tækið....nú hlýt ég að fara sofna bráðlega...er þaggi?!
later homzzz
»
10.11.2008 15:24:59 / johannrunar
ég var að lenda í mesta bíó atriði í heimi....var í skólanum og úti að stúlla aðeins og kom úr strætó og smá rigning í gangi og smá pollar út um allt! keyrir ekki sendibíll fram hjá og beint í poll og vatn yfir mig alla og ég nátt hrekk við - öll blaut - en svo keyrir annar bíll í pollinn og aftur vatn yfir mig alla! hahahaha ég komst ekkert áfram eftir fyrsta bílinn nema ég hefði náð að hlaupa fram hjá pollinum og áður en ég vissi af því þá var seinni bílinn kominn! einhver gaur í range rover sem sá þetta og auðvitað fannst þetta mega fyndið! vildi að ég hefði verið í bílnum með honum en þetta var samt mega fyndið! hló mikið...ein reyndar því það var enginn annar í kring! haha en já!!! gaman af þessu!
maður þarf nú víst að geta hlegið af sjálfum sér er það ekki!!
»
09.11.2008 22:29:25 / johannrunar
voða stutt og laggot færsla í dag!
mega góður stelpu hittingur á föstudaginn heima hjá freydísi og co. voru búnar að vera rosalega myndarlega í eldhúsinu og með finar kökur og eitthvað!
við jóhann vorum bara heppin að panta flug fyrir 1 nóv því núna má bara fara með 15kg í flug!!! arggg!!! og ég er náttúrulega að flytja heim! argggg!!!
vinna allan laugardaginn - fekk meira að segja 10 pund tips sem var mega næsó!
ég, magnea og db fórum á body worlds sýninguna í dag sem var mega flott og mega vírd og pínu ógeðslega á sama tíma
getið séð um hana hérna http://www.bodyworlds.com/en.html mæli einstaklega með þessu ef þið eruð í london! jóhann sagði okkur frá þessu og hlakka mikið til að fara með honum aftur á þetta!
friðrik flutti heim í gær sem var vírd!
arna systir db koma í dag með ca 10 mánað gömlu dóttir sína sem er mega krútt! gaman aðeins að leika!
ætla fara poppa og vera kósí!
ég á afmæli bráðum!!!!!
»
06.11.2008 13:53:32 / johannrunar
ja....engir islenskir stafir....er uppi skola og ef eg blogga ekki nuna ta bara gerist tad aldrei!
en ja...seinast var 27 oktober....nuna er 6 nov!!
28 oktober....eg for i vinnuna...rosa saklaus....buin ad vera i vinnunni i ca 3 klt tegar eg var ad halda hurd opni fyrir stelpu kokk og hun slepti hinni hurdinni (svona swing doors eins og eru alltaf i eldhusum, ja ordin svo utlensk eg bara ekki kunna islenska ordin)! megggga tungar hurdir btw! og eg var ad halda hurdinni opni fyrir henni og haldidi ad beyglan hafi ekki slept hinni hurdinni og puttinn minn vard a milli! tetta heitir ekki ad klemma puttann sinn....hann var gersamlega rustadur!!!! sem betur fer ekki brotin en trefaldur i staerd og strax kol svartur og blar!!!! nadi i yfirmanninn minn og vid kaeldum tetta eitthvad sem gerdi rosa litid en sjittttt tetta var svo vont! tad hefur margt gerst fyrir mig, sma klaufi her a ferd, en tetta var svo vont!!!!!!!
for og sotti johann uppa heathrow daginn eftir og tad var nu valla haegt ad gera annad en ad hlaegja tvi puttinn var svo otrulega blar og bolginn!
buningapartyid var AWESOME!!!!! fridrik var ss prinsessa og johann var prinsinn hans! mjog kripi par tar a ferd! verd ad redda myndum svo tid getid sed tvi eg var natt bara med mina finu einnota en tad eru vist myndir ut um allt a facebook eda getid sed a blogginu hans adda eitthvad sma! blog.central.is/addilondon og.....eg og db vorum wayns world, wayns world, party time, excellent!!!! eg var wayne og hun garth og tad var tekid all the way og eg spreijadi harid a mer svart og allt! vorum mega flottar!!! og strakarnir audvitad lika! rosa saetir!! allir i mega flottum buningum! og mjog god og skemmtileg maeting! allir mega hressir!
fridrik vann buninga keppnina...audvita...sersaumadur, mega bleikur kjoll og svona!!! besta vid tad er ad tad var ss pulsu pakki i verdlaun og hann er graenmetisaeta tannig ad nu faum vid db bara pulsurnar! namm!
megga sega naeso ad hafa johann og fa ad vera kaerasta!
vid forum i spitalaleidangur a laugardaginn tar sem puttinn minn var ennta jafn bolginn og blar og eg var ordin sma stressud um hann! en tad bjargadist allt vel og mega naes spitalakerfi herna! tekin rontgen og borad gat i noglina til ad hleypa ollu blodinu ut og minnka trystinginn.....ja....tetta var sko alvoru!!!! turfti ekki ad borga neitt sem var awesome! madur tarf vist ad profa allt herna i london fyrst madur er nu ad fara flytja heim bradum!
johann for svo a manudaginn eftir ad hafa farid 3 x a nandos a hvad....5 dogum!!! haha alvoru fan! ta tok raunveruleikinn aftur vid sem tyddi skoli, vinna og laera til skiptis!!
en ja tetta er svona rumlega tad sem er buin ad vera gerast herna uti! og svo.... vinna meira i dag! stelpu hittingur a morgun og kur hja magneu! fridrik er bara ad flytja heim til islands a laugardaginn sem verdur mega vird!!! bara eg og db eftir i ibudinni!
svo natturulega a eg AMMMLIIIIIIIIII eftir bara 10 DAGA!!!!! (eiginlega 12 daga en samt bara 10 dagar haha) veiiiiii! djisss man! ammli ammli!!! tad er svo gaman! og svo kemur johann bara aftur daginn eftir, 19 nov!!! veiii!!!
en ja aetla drifa mig heim!
kommentid bitses
later
»
25.10.2008 10:30:12 / johannrunar
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún MAMMA MÍN!!!!!!
hún á afmæli í dag!
veiii mamma krútt á afmæli í dag!
vildi að ég væri á íslandi að knúsa hana og borða chilli kássu með þeim öllum í kvöld og fá kökur!!! namm!!!
afmæliskveðjur,
brynja
»
Síður:
1 2 3 ...
9